Málefni hjúkrunarheimila á vegum sveitarfélaga

Frumkvæðismál (2102169)
Velferðarnefnd

Nefndarfundir

Dagsetning Fundur Bókun
22.03.2021 53. fundur velferðarnefndar Málefni hjúkrunarheimila á vegum sveitarfélaga
Nefndin fjallaði um málið.
16.03.2021 52. fundur velferðarnefndar Málefni hjúkrunarheimila á vegum sveitarfélaga
Helga Vala Helgadóttir og Ólafur Þór Gunnarsson lögðu fram, og nefndin samþykkti, eftirfarandi bókun:

Velferðarnefnd Alþingis lýsir yfir þungum áhyggjum af þeirri stöðu sem nú er komin upp vegna færslu á rekstri hjúkrunarheimila frá sveitarfélögum til ríkisins.

Velferðarnefnd Alþingis hvetur stjórnvöld til að ganga þannig frá yfirfærslunni að starfsfólki sé tryggð áframhaldandi atvinna og réttindi þess og kjör séu tryggð líkt og fordæmi er fyrir við sambærilega yfirfærslu og að m.a. verði horft til þeirra lagareglna sem finna má í lögum um réttarstöðu starfsmanna við aðilaskipti að fyrirtækjum, nr. 72/2002.

Telji stjórnvöld lagasetningu nauðsynlega er velferðarnefnd reiðubúin að koma að því og mun gera sitt til að tryggja hraðan framgang slíks frumvarps innan nefndarinnar ef af verður eða leggja slíkt frumvarp fram í nafni nefndarinnar. Nefndin bendir á að mikilvægt er að lausn fáist sem fyrst í málinu, enda skammur tími til stefnu, og mikilvægir hagsmunir vinnandi fólks í húfi, sem og þjónusta við viðkvæma skjólstæðinga.
15.03.2021 51. fundur velferðarnefndar Málefni hjúkrunarheimila á vegum sveitarfélaga
Nefndin fjallði um málið.
08.03.2021 47. fundur velferðarnefndar Málefni hjúkrunarheimila á vegum sveitarfélaga
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Karl Björnsson, Tryggva Þórhallsson og Valgerði Freyju Ágústsdóttur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
01.03.2021 45. fundur velferðarnefndar Málefni hjúkrunarheimila á vegum sveitarfélaga
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Hrönn Ottósdóttur, Aðalbjörgu Guðmundsdóttur og Guðlaugu Einarsdóttur frá heilbrigðisráðuneyti og Maríu Heimisdóttur, Inibjörgu K. Þorsteinsdóttur og Guðlaugu Björnsdóttur frá Sjúkratryggingum Íslands.
23.02.2021 44. fundur velferðarnefndar Málefni hjúkrunarheimila á vegum sveitarfélaga
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Írisi Róbertsdóttur bæjarstjóra Vestmannaeyjabæjar, Ásthildi Sturludóttur bæjarstjóra Akureyrarbæjar og Matthildi Ásmundardóttur bæjarstjóra Sveitarfélagsins Hornafjarðar.